FjölskyldumyndirHérna má finna ýmsar myndir af fjölskyldunni, sérstaklega af Rakel Rós og Brynjari Karli. Auk þess má finna myndir af ýmsum viðburðum innan stórfjölskyldunnar.
Rakel Rós orðin sjö ára. Hún hélt rosa veislu þar sem hún bauð stelpunum úr bekknum (auk þriggja stráka) og seinnipartinn kom svo fjölskyldan. Skemmtilegur dagur hjá stórri sjö ára hnátu.
Fyrstu viku skólafrís var Rakel vinnumaður á Bjargshóli þar sem hún aðstoðaði við tamningar, smalamennsku, járningar og fleira. Er sú stutta orðin frábær reiðmaður og þeysist um allt berbakt.
3. júní 2008 var haldið bekkjarkvöld hjá Rakel. Voru þau með söngatriði, sögustund og fluttu leikritið um Mjallhvíti og dvergana sjö þar sem Rakel fór með hlutverk vondu nornarinnar. Stóð hún sig með afbrigðum vel að allra sögn ;-) Amma Lóa kom með til að sjá prinsessuna og svo var auðvitað allt tekið upp :-)