Lady Gaga var að gefa út nýtt lag sem er mjög gott, hérna er myndbandið á youtube
Lady Gaga - Born This Way
Lady Gaga var að gefa út nýtt lag sem er mjög gott, hérna er myndbandið á youtube
Lady Gaga - Born This Way
→ Engin ummæliFlokkur: Almennt raus

Rakel og Brynjar við jólatréð
- Fjölskyldan Goðaborgum 1
→ Engin ummæliFlokkur: Almennt raus
Olga er bareigandi í Grundarfirði. Til þess að auka veltuna þá ákveður hún að leyfa dyggum viðskiptavinum—sem flestir eru atvinnulausir alkar—að drekka út á krít.
Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Olgu valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni
Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Olgu í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.
Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf—sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli—ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.
Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar Olgu borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki. Olga getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Olgu vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.
Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum.
Nýr skattur er lagður á. Bindindismenn eru látnir borga brúsann.
→ Engin ummæliFlokkur: Almennt raus
Jæja þá styttist í jólin og krakkarnir spenntir. Það eru nokkrir pakkar komnir í hús sem krakkarnir vita af og gerir biðina enn erfiðari. Brynjar er byrjaður með samningaviðræður sem snúa að því að hann fái að opna einn pakka núna híhíhí
Á afmælisdag langafa var farið á jólaball þar sem bæði börnin fóru upp og sungu einsöng sem gerði foreldrana ákaflega stolt hehe. Ingunn vinkona eignaðist jafnframt son þennan dag, til hamingju elskan ![]()
20. des var svo farið í Hvalfjörð með Kaupþingi, jólatré valið og sagað niður. Brynjar og pabbi mættu með sitt hvora sögina og hjálpuðust að við að saga tréð niður. Jólasveinar mættu svo á svæðið og öllum boðið upp á heitt kakó og með því. Annars eru allir komnir í jólafrí á þessu heimili og njótum við dagsins í snjónum, sundi og að undirbúa jólin, gaman gaman
→ 2 ummæliFlokkur: Krakkarnir
Í dag á Rakel Rós afmæli og verður hún sjö ára. Mikil tilhlökkun hefur verið síðustu daga enda verður mikið fjör í afmælinu. Stelpurnar úr bekknum hennar (18 stikki) koma klukkan þrjú og verður þá borðuð afmæliskaka, farið í flöskustút, dansað aðeins og svo horft á nýja mynd. Seinni partinn koma svo ömmur og afar, langafi og frændur og frænkur í heimsókn. Sem sagt mikið stuð í dag og mikil tilhlökkun ![]()
Mamma má ekki vera að því að skrifa hérna því hún þarf að halda áfram að baka og undirbúa afmælið hehehe
→ Engin ummæliFlokkur: Krakkarnir
Nú er fjölskyldan búin að fara í réttir og smala fyrir Bjargshól. Rakel Rós er orðin rosalega góð á hestbaki. Réttardaginn fór hún á flegiferð berbakt um allar trissur og sat eins og herforingi á baki. Um síðustu helgi þegar smalað var fyrir Bjargshól var hún ein, enginn taumur á milli. Fór niður í móana og upp aftur, ofboðslega dugleg og kvartaði helst undan því að hrissan færi ekki nógu hratt!!
→ Engin ummæliFlokkur: Krakkarnir
Fjölskyldan fór til Tenerife í sumar og naut sín vel í sólinni og sandinum. Krakkarnir eru á því að flytja út en helst færa Ísland nær svo það sé stutt á milli!!
Það var margt gert í útlandinu og var myndavélin aldrei langt undan.
→ Engin ummæliFlokkur: Krakkarnir
Þetta er búið að vera ótrúleg blíða í sumar og hefur fjölskyldan notið hennar með göngu- og hjólatúrum, sundferðum, farið í Nauthólsvík og margt fleira. Í síðustu viku var Rakel í sveitinni hjá Möggu frænku og fjölskyldu. Þar naut hún sín sem prinsessan á bænum, fór í fjósið, á hestbak og notaði tíman vel til að stríða Atla frænda
. Þegar hún var svo sótt á föstudaginn var ákveðið að fara í útilegu á suðurlandinu. Þar var farið í sund, í dýragarðinn að Slakka og Gullfoss og Geysir skoðaðir. Geysir, eða Strokkur öllu heldur þar sem Geysir er óvirkur, vakti mikla lukku krakkanna. “Eiiiinuuu sinni enn mamma” og þegar heim var komið var óskað eftir að fara fljótlega aftur. Enda gaman að fylgjast með í návígi, hvernig yfirboðið hreyfist og spýtist svo allt í einu upp í loftið. Gaman gaman
→ Engin ummæliFlokkur: Almennt raus
Sumarið er yndislegt og naut fjölskyldan blíðunnar um helgina. Á laugardaginn var hjólað í sund í Mosfellsbæ og flatmagað þar í blíðunni. Það eru skemmtilegar rennibrautir þar svo við mælum með þeirri sundlaug fyrir ærslabelgi sem þurfa útrás
. Eftir sundið hjóluðum við svo til ömmu og afa í Miðhúsum þar sem grillaður var dýrðarinnar matur.
Á sunnudaginn fórum við í Nauthólsvík og passaði mamma börnin sín mjög vel. Bar á þau sólarvörn svo enginn brynni. Sjálf passaði hún að vera með sólgleraugu og hatt sem hún setti oft fyrir andlitið en allt kom fyrir ekki… hún brann þá bara á fótleggjunum í staðinn!!
Um kvöldið voru krakkarnir orðnir þreytt eftir alla útiveruna og við matarborðið voru töluverð læti í þeim. Eftir matinn kom Rakel svo til mömmu sinnar og sagði: “Fyrirgefðu”. Mamman vissi ekki alveg hvað væri verið að afsaka og sagði þá prinsessan: “Fyrirgefðu hvað við vorum óþekk við matarborðið”. Stuttu seinna kom prinsinn og sagði það sama… sendur af systur sinni til að gleðja mömmu hehehe.
→ Engin ummæliFlokkur: Krakkarnir
Fjölskyldan tók sér hjólatúr á 17. júní og hjólaði niður í bæ. Þegar þangað var komið fengum við okkur sæti hjá afa Pétri á Ingólfstorg og fylgst með fólki slást um þá fáu stóla sem þar voru. Vindurinn náði ekki þangað og sólin skein skært þannig að fólki lág við að brenna, öllum nema pabba…. hann brann og gengur nú undir nafninu “Rauðhaus” ![]()
Einnig var kíkt á skemmtidagskrá Arnarhóls og dansað þar um stund. Þegar við röltum að hjólunum aftur fórum við framhjá lögreglumótorhjólum og fékk Brynjar að setjast á eitt þeirra meðan mamma myndaði hann. Skemmtilegt í ljósi þess að drengurinn ætlar að verða lögreglumaður svo hann geti keyrt lögreglumótorhjól.
Rakel hjólaði alla leið niður í bæ og svo aftur að Kringlunni eftir að hafa verið í bænum. Þaðan tróð fjölskyldan sér svo í strædó sem fyrir var nokkuð fullur af unglingum og fólki ættað frá Asíu. Mamma fékk aðeins í magann á þessu ferðalagi heim en enginn annar virtist kveinka sér og komust börnin heil heim þar sem farið var beint út að leika.
→ Engin ummæliFlokkur: Krakkarnir